Eyvindur Fjalla hann situr í helli,
ævagamalla og hrör af elli.
Konan hans Halla,
hún breiðir út feldinn,
liggja þau hljóð
og elskast á kveldin.
Bág er tíðin og böl í sveitum
sauðaþjófar þeir liggja í grafreitum.
Grasa-Guddu þeir böstuðu og brenndu,
bévítans grasið á bálið þeir sendu.
Mökkinn af reyknum til himins þá lagði,
skakkur sat Pétur í efra og sagði:,, Bisnessinn búinn og einnig hvarf trúin á rasta!"
Þeir bundu upp allt sem þeir fundu
en tóku hina fasta.
Texti: Magnús Finnur Jóhannsson og Berglind Björk Jónasdóttir
Comments (0)