X! Ljóðið er dautt listform og vitið uppurið
Orðið er jarðsungið við stynjan hórkarla
Mógúla og svikahrappa
Það kostar milljarð að fá krabbamein og líftóruna að losna við það
Þú horfðir á mig deyja
Þú horfðir á mig deyja
Og deyja
Og deyja
Og deyja
Þornaðir ávextir glataðra væntinga halda skrílnum í algleymingi
Gjaldþrot hins andlega
Mergsýgur framtakið
Og kæfir það í biturleika
Saltinu úr grautnum er stráð í sárið og ég veslast upp og skrælna
Þú horfðir á mig deyja
Og deyja
Þú horfðir á mig deyja
Og deyja
Og deyja
Og deyja
Óþrjótandi gengisfallið ámáttkast í óbilandi meðalmennsku meðalmannapans
Lygarnar eru sem hnífur í blæðandi síðu aumingjans
Hann krýpur á hnjánum, holskeflan er gröf
Saltinu úr grautnum
Er stráð
Í sárið
Og ég veslast upp
Og skrælna
Dreyri
Vellur
Hann fellur – í valinn
Þú horfðir á mig deyja
Þú horfðir á mig deyja
Og deyja
Og deyja
Og deyja
Þú
Þú horfðir
Á mig deyja
Þú
Þú horfðir
Á mig deyja
Þú
Þú horfðir
Á mig deyja
Þú
Þú horfðir
Á mig deyja
Comments (0)